Páll Hjaltason er leiðandi í íslenskum arkitektúr og hönnun. Hann á yfir 30 ára starfsreynslu að baki og er einnig virtur borgarhönnuður, sýningarstjóri og fyrrum borgarfulltrúi. Páll er maður sem þykir einstaklega vænt um heimaborgina sína.
Síðustu fjögur árin hefur stór hluti af vinnutíma Páls verið helgaður því að sjá eitt af stærstu sköpunarverkum hans verða að veruleika.
Svo vill til að athafnasvæði FlyOver Iceland er bókstaflega hinum megin við götuna við vinnustofu Páls á Granda, hverfið sem er í hvað hraðasti þróun í Reykjavík. Þetta svæði er sérlega aðgengilegt, segir hann, og fullt af nýjum veitingastöðum sem njóta mikilla vinsælda meðal íbúa Reykjavíkur. FlyOver Iceland á eftir að falla vel að þessu umhverfi.
Enginn arkitekt getur valið eina byggingu sem sitt uppáhald (ekki frekar en foreldri), segir hann, en FlyOver Iceland er fyrir honum „alveg sérstök bygging, einstök bygging.“
„Þetta er eitthvað allt annað og meira en bara ferðamannastaður,“ segir hann. Þetta verður bygging sem verður opin og aðgengileg öllum – samkomustaður. Fyrir utan húsið verður stórt almenningssvæði til að bjóða alla velkomna inn. Að næturlagi, og næturnar geta verið býsna langar á Íslandi, verður þessi stóra, keilulaga bygging lýst upp eins og viti. Þetta verður bygging sem fer ekki fram hjá neinum,“ segir Páll.
„Ég þykist viss um að hún verði einstök í sinni röð,“ segir hann. „Þarna koma saman háþróuð tæknin sem notuð er við sýningarnar (sem kallar auðvitað á vandaðasta tækni- og vélbúnað sem völ er á), og opin bygging, aðgengileg almenningi, sem er hlýleg og spennandi og verður eftirsóknarverður viðkomustaður sem slík. Þetta verður því áhugaverður samruni tveggja mismunandi þátta.“
Páll segir okkur að hann hafi eytt miklum tíma í að þróa flókið innra flæði byggingarinnar, þar með talin tvö sýningarsvæði, kaffihús og verslanarými, og svo auðvitað gríðarstóran sýningarsalinn þar sem flugferðirnar fara fram. Byggingin þurfti að hafa náttúrulegt „flæði“ innan frá.
„Stundum koma hugmyndir um byggingar utan frá. En þessi þróaðist innan frá og út á við,“ segir hann.
Eins og flestar byggingar á Íslandi þarf þessi bygging að vera athvarf og skjól. Hún er staðsett útvið opið haf og fær stundum á sig óvægna vinda úr norðaustri. Veðurskilyrðin geta verið talsvert krefjandi á tilteknum tímum ársins, rétt eins og annars staðar á þessari eyju úti á miðju hafi.
„Á Íslandi reynir maður alltaf að láta framhliðina vísa í suður,“ segir Páll, „til að skýla sér sem best fyrir veðrahamnum.“
Íslensk byggingarlist einkennist að verulegu leyti af áhrifum náttúruaflanna og margra alda heillandisögu og menningu, en þó segir Páll að þetta sé svið sem er enn í mótun, rétt eins og náttúra landsins sjálfs.
„Ísland er mjög ungt hvað arkitektúr varðar – byggingar fortíðarinnar hafa ekki lifað af,“ segir hann. Hér má að sjálfsögðu greina sömu áhrif iðnvæðingarinnar og hafa einkennt byggingarstíl á hinum Norðurlöndunum. En þetta er afar skapandi þjóð sem er enn að þroskast hvað hönnunarstíl og hönnunarhugsun varðar,“ segir hann.
„Ekki síst vegna þess hvað landið er ungt í landfræðilegum skilningi. Ísland er land í mótun,“ bætir hann við. „Það býr yfir mikilli orku, hörku, grófum dráttum. Það hefur ekki verið slípað til.“
FlyOver Iceland er hannað í þessum grófgerða stíl, sem einnig einkennir allt Grandasvæðið, þar sem borgarlíf, iðnaðarsvæði, nútímalegar byggingar og sögulegar minjar mynda spennandi heild. Páll segir að byggingin muni þó einnig hafa yfir sér hlýlegan og notalegan blæ gestgjafa sem vill að gestunum líði vel á meðan heimsókn stendur yfir.
Páll segir að það sé fyrir duttlunga örlaganna sem FlyOver Iceland er nú í byggingu hinum megin við götuna við fyrirtækið hans, Plús arkitektar.
„Það er reyndar tilviljun, en mjög skemmtileg tilviljun,“ segir hann. „Ég hef aldrei upplifað þessa nánd við verkefni áður og mun sennilega ekki upplifa það aftur, að geta horft yfir byggingarsvæði svona risaverkefnis á hverjum degi og geta rölt út og spjallað við iðnaðarmennina.“
Fyrsta skóflustungan var tekin í apríl árið 2018 og þegar leið á haustið voru burðarvirki byggingarinnar nánast fullgerð. Í byggingarteyminu eru arkitektar frá fyrirtæki Páls og stór hópur iðnaðarmanna á svæðinu.
„Það er eins gott að það takist vel til því ég þarf að hafa þetta fyrir augunum beint fyrir framan gluggann,“ bætir hann við og hlær.
Páll segir að það hafi markað djúp spor í sál hans, eins og annarra landsmanna, að alast upp á stað sem er jafn afskekktur og landfræðilega krefjandi og Ísland er.
„Það mótar mann tilfinningalega að alast upp hér,“ segir hann. „Ég hugsa að ég tali fyrir munn flestra Íslendinga þegar ég segi að við elskum landið okkar afar heitt. Okkur finnst það í alvöru besti staður í heimi – jafnvel þegar það rignir allt sumarið!“
Og þótt Páll sé svolítið hvumsa yfir því hvað ferðamönnum hefur fjölgað gífurlega („ég heyrði því fleygt að það væri af því að landið lítur svo vel út á Instagram,“ segir hann hlæjandi) er hann meira en til í að gefa gestum borgarinnar góð ráð um skemmtilega staði í heimaborginni hans.
Hér eru fimm ráðleggingar frá Páli:
Í Reykjavík er fullt af litlum og notalegum kaffihúsum. Kaffihús Vesturbæjar (sem yfirleitt er bara kallað „Kaffi Vest“) er látlaus og notalegur staður sem er í miklu uppáhaldi hjá Páli.
Flestir ferðamenn eru sendir beint í manngerðar heitar laugar á borð við Bláa lónið en Íslendingarnir sækja fremur gamalgrónar sundlaugarnar sem finna má í sumum hverfum borgarinnar. Alls er hægt að velja á milli 18 sundlauga í borginni. Þarna hittast Reykvíkingar, margir mjög reglulega, til að blanda geði, þrasa um pólitík og slaka á. „Það má alls ekki missa af sundlaugunum, þær eru frábærar,“ segir Páll.
Að fá sér göngutúr með fram strandlengjunni í Reykjavík er eitt af því sem Páll hefur hvað mest yndi af. Göngustígarnir við ströndina handan við flugvallarsvæðið nærri miðborginni er í sérstöku uppáhaldi. „Þar er frábært að ganga – ég fer oft þangað með hundinn minn eða hjóla þessa leið,“ segir hann.
Þar er úr mörgu að velja. Svæðið í kringum FlyOver Iceland er að verða eitt mest spennandi veitingahúsasvæði borgarinnar og býður allt frá skyndibitastöðum og pítsastöðum til matstofa í hæsta gæðaflokki. Páll er hrifinn af Coocoo's Nest, sem er líflegur og notalegur veitingastaður steinsnar frá vinnustofunni (og auðvitað líka rétt hjá FlyOver Iceland).
Eitt af því sem Páll ráðleggur öllum er að heimsækja þjóðgarðinn Þingvelli, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. „Þangað ættu allir að koma og fyrir því eru tvær ástæður: Jarðfræðilega er mjög heillandi að sjá þarna berum augum hvernig heimsálfuflekarnir tveir mætast, og menningarlega er þetta staðurinn þar sem landnámsmenn Íslands stofnsettu þingið, árið 930.
Svo verður sköpunarverk Páls, FlyOver Iceland, að sjálfsögðu ómissandi viðkomustaður þegar byggingin opnar sumarið 2019.
„Ísland er land í mótun. Það býr yfir mikilli orku, hörku, grófum dráttum. Það hefur ekki verið slípað til.“