Tripadvisor Travelers' Choice Award 2024
Komdu í ævintýralegt ferðalag án þess að yfirgefa Reykjavík. Frá afskekktum skerjum og eyjum til djúpra gilja og hálendis-drauma. Á sýningunni okkar sérð þú staði á Íslandi sem þú hefur aldrei séð áður!
Langaði þig að fara strax aftur eftir flugið? Þú getur keypt næsta miða á 50% afslætti samdægurs. Nýji miðinn gildir í eitt ár. Gildir aðeins á staðnum.

Áttu gjafabréf í FlyOver? Það er agalegt að fá gjafabréf í gjöf og gleyma síðan að nota það! Komdu núna í vetur og notaðu gjafabréfið. Hér er rólegt andrúmsloft, auðvelt að bóka og allar öryggisráðstafanir fyrir hendi. Við mælum með því að bóka tíma til að nota gjafabréfið.
Bókaðu fyrirfram á netinu til að tryggja þér pláss, sleppa við röð og njóta bestu kjaranna á ævintýraferðinni þinni.
| Almennt verð (14 ára og eldri) á heimasíðu |
Barn (13 ára og yngri)* á heimasíðu |
|---|---|
| 5690 | 3690 |
| Almennt verð (14 ára og eldri) við komu |
Barn (13 ára og yngri)* við komu |
| 6250 | 4250 |
* Til að fá inngöngu í FlyOver Iceland þurfa börn að vera minnst 100 cm að hæð. Börn þurfa að vera í fylgd forráðamanns eða annars fullorðins (14 ára eða eldri).
Sýningar hefjast á um það bil 15–20 mínútna fresti á opnunartíma. Allt í allt tekur þetta um 35 mínútur og þar á meðal er flugferðin sjálf sem stendur yfir í 8,5 mínútur.
Takið eftir, FlyOver Iceland tekur ekki við greiðslu í reiðufé, hægt er að greiða með öllum helstu greiðslu kortum, einnig er hægt að bóka fyrirfram á heimasíðunni okkar.
Skipuleggðu ferðina áður en þú leggur af stað með því að lesa Algengar spurningar.